Umbra - þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins fylgir eftirfarandi Upplýsingaöryggisstefnu:
- Hlutverk Umbru á þessu sviði er að hámarka öryggi upplýsinga ráðuneyta og stofnana með tilliti til leyndar, réttleika, tiltækileika og persónuverndar.
- Umbra fylgir lögum, reglum og leiðbeiningum fyrir stjórnun upplýsingaöryggis sem eru grundvöllur skipulags og viðhalds ráðstafana sem standa vörð um leynd, réttleika og tiltækileika gagna og upplýsingakerfa.
- Stefna Umbru í upplýsingaöryggismálum er bindandi fyrir allt starfsfólk Umbru og nær til allra fyrirtækja, stofnana og starfsfólks sem veitir Umbru þjónustu. Umbra setur sér persónuverndar- og upplýsingaöryggisstefnu í samræmi við ákvæði laga um persónuvernd. Stefnan gildir um sérhverja meðferð persónuupplýsinga í skilningi laga um persónuvernd og á við alla starfsemi á vegum Umbru.
- Allt starfsfólk Umbru er skuldbundið til að vernda gögn og upplýsingakerfi gegn óheimiluðum aðgangi, notkun, breytingum, uppljóstrun, eyðileggingu, tapi eða flutningi.
- Umbra stuðlar að virkri öryggisvitund starfsfólks Umbru, ráðuneyta og stofnana, þjónustuaðila og gesta, með reglum, fræðslu og ábendingum.
- Umbra tryggir framfylgd þessarar stefnu með því að skilgreina ábyrgðarhlutverk í starfslýsingum starfsfólks stofnunarinnar og með virku gæðakerfi.
- Umbra framkvæmir reglulega áhættumat til þess að ákveða hvort frekari aðgerða og umbóta sé þörf.
- Gæðastjóri gefur árlega út skýrslu varðandi hlítingu Umbru gagnvart þessari stefnu.
- Starfsfólki, þjónustuaðilum, núverandi og fyrrverandi, er óheimilt að veita upplýsingar um innri mál Umbru, ráðuneyta og stofnana eða annars starfsfólks.
- Umbra endurskoðar þessa stefnu eins og tilefni er til en að lágmarki á tveggja ára fresti.
- Umbra fylgir ÍST ISO/IEC 27001:2017 – Stjórnunarkerfi um upplýsingaöryggi sem er grundvöllur skipulags og viðhaldsaðgerða sem standa vörð um leynd, réttleika og tiltækileika gagna og upplýsingakerfa.
- Stefnu Umbru í upplýsingaöryggismálum er nánar lýst í skjali um stjórnun upplýsingaöryggis Umbru.
Stefna seinast uppfærð 19. desember 2022 (Næsta uppfærsla fyrir 19. desember 2024)
Finna má undirritað eintak af Upplýsingaöryggisstefnu Umbru hér að neðan.