Umbra hefur fengið fyrirspurnir frá ríkisaðilum um möguleika á því að geta nýtt Copilot Pro í skýjageirum Umbru. Stutta svarið er að í mars 2024 er ekki möguleiki á því að nýta eða kaupa þessi leyfi þar sem enn er eftir að skoða áhrif virkjunar í skýjageirunum.


Umbra er að hefja verkefni um nánari skoðun á öllum þáttum virkjunar í samstarfi við Microsoft og mun kynna næstu skref þegar þau verða ljós. 


Sömu sögu er að segja um Copilot fyrir Power BI, sem í augnablikinu er lausn sem er í boði í "forskoðun" (Preview) og verður tekin afstaða til hennar þegar forskoðunarfasanum er lokið. 


Almennt um gervigreind hjá Ríkinu

Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur gervigreind hjá hinu opinbera á eftirfarandi slóð: Stjórnarráðið | Gervigreind hjá hinu opinbera (stjornarradid.is)


Nánar um Copilot

Gervigreindar aðstoðaraðilinn Copilot var fyrst kynntur til sögunnar af Microsoft 7. Febrúar 2023 (takmörkuð forsýn), fyrst um sinn í gegnum Bing leitarvélina og var þá í hlutverki spjallmennis sem var kallað Bing Chat. 


Í mars 2023 kynntu Microsoft síðan aðstoðaraðilann Copilot sem þeir sögðust ætla að tengja við flest öll sín forrit og lausnir með tíð og tíma og kynntu þeir verðskrá í júlí sama ár, en með þeim takmörkunum að kaupendur þyrftu að kaupa að lágmarki 300 leyfi. 


Það var svo ekki fyrr en í nóvember 2023 sem Copilot Pro var kynntur sem viðbót við Office hugbúnað og í janúar 2024 þar sem hann gat raunverulega farið að aðstoða við gerð skjala og tengda hluti.


Framtíð Copilot

Það er því ljóst að Microsoft Copilot er enn í mikilli þróun og ekki útséð enn sem komið er hvernig lausnin mun geta nýst notendum að fullu. Má þar nefna sérstaklega að Copilot fyrir Office skilur ekki íslensku og því eru enn takmörkuð not fyrir hann sem aðstoðaraðila.


Á ráðstefnu Microsoft 27. febrúar 2024 á Grand hotel lögðu forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannson, og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, lóð sín á vogarskálarnar þegar þau skoruðu á Microsoft að leggja áherslu á að virkja Íslensku í Copilot. 


Á sömu ráðstefnu kom svo líka fram að hálfu Microsoft að þeir staðfesta að Copilot er enn í það mikilli þróun að það er óráðlegt fyrir stærri rekstraraðila, og sér í lagi ríkisaðila, að treysta um of á Copilot á þessum tíma, en jafnframt mæltu þeir með því að undirbúa vel jarðveginn fyrir framtíðina.


Það er einmitt það sem Umbra er að vinna að þessa stundina og vonumst við til að geta fært ykkur frekari fréttir á komandi 

mánuðum.


Yfirlit yfir Copilot lausnir

Hér má sjá athyglisvert yfirlit yfir Copilot lausnir sem MIcrosoft er að bjóða upp á: