Efnisyfirlit
- Saga skýjageira ríkisins
- Ósk um eigin skýjageira
- Eigin skýjageiri
- Helstu skilyrði og forsendur fyrir eigin skýjageira
- Verkefnavinna við flutning
Saga skýjageira ríkisins
Frá og með árinu 2018, þegar íslenska ríkið skrifaði undir heildar leyfasamning við Microsoft, var sett af stað verkefni undir nafninu Pólstjarnan sem miðaði að því að koma öllum A-Hluta stofnunum ríkisins í Microsoft 365 skýjageira og nýta þær lausnir sem kallaðar eru „Skrifstofuumhverfi ríkisins“. Um tilgang og tilurð leyfasamnings má lesa nánar hér.
Hönnunarferill verkefnisins studdi við þrískiptingu valds þegar ákveðið væri hvernig skipta ætti upp stofnunum og voru að lokum stofnaðir níu samþykktir skýjageirar ríkisins í rekstri sjö rekstraraðila.
Í kjölfarið hófst innleiðing stofnana í þessa skýjageira á og geta þær þannig notið þeirra möguleika sem Skrifstofuumhverfi ríkisins býður upp á og jafnframt treyst á örugga stýringu og rekstur skýjageira í höndum rekstraraðilanna.
Eins og gengur og gerist hafa, í gegnum árin, verið skiptar skoðanir á ýmsum hlutum verkefnisins og krafa um eigin skýjageira ríkisaðila komið fram. Var því tekin ákvörðun í maí 2025 að ríkisaðilar gætu sótt um leyfi til fagráðuneytis um eigin skýjageira og að undangenginni rýni mögulega fengið leyfi fyrir eigin skýjageira með ákveðnum takmörkunum og skilyrðum.
Ósk um eigin skýjageira
Allar óskir um eigin skýjageira skal beina til fagráðuneytis viðkomandi stofnunar. Rekstraraðilar geta ekki tekið ákvörðun um réttmæti óskar eða ákveðið með framhald.
Hér má nálgast kynningu um eigin skýjageira frá því í maí 2025, einnig leiðbeiningar fagráðuneytis ásamt kostnaðarsniðmáti.
Eigin skýjageiri
Ef samþykki fæst skal senda það með formlegum hætti til viðkomandi rekstraraðila sem skráir hjá sér beiðnina og hefur undirbúning um samtal við stofnun.
Möguleikar á eigin skýjageira eru tveir:
- Ríkisaðila býðst að vera í eigin skýjageira í miðlægum rekstri núverandi rekstraraðila.
- Ríkisaðila býðst að vera í eigin skýjageira í eigin rekstri.
Skal ríkisaðili tilkynna rekstraraðila hvor möguleiki er valinn.
Helstu skilyrði og forsendur fyrir eigin skýjageira
Ríkisaðilar er hvattir til að kynna sér nánar þau gögn sem vísað er í, en til glöggvunar má skoða eftirfarandi lista er tekur á stóru atriðinum:
- Ekkert fjármagn til stofnana mun fylgja breytingunum.
- Hugbúnaðarleyfi verða enn keypt miðlægt samkvæmt heildarsamningi.
- Umbra mun áfram hafa hlutverk í leyfaumsýslu og sérfræðiráðgjöf við stofnanir sem fara þessa leið.
Verkefnavinna við flutning
Hafa skal eftirfarandi í huga:
- Verkefnastýring, utanumhald og annað er tengist útgöngu skal vera að fullu í höndum og á ábyrgð stofnunar.
- Útgöngu úr skýjageira getur fylgt töluverð vinna að hálfu stofnunar og rekstraraðila. Rekstraraðila er því heimilt að innheimta sértæk gjöld fyrir slíka vinnu.
- Mikilvægt er að samstilla vinnu við útgöngu út frá eftirfarandi forsendum:
- Verkefnastöðu rekstraraðila.
- Talningatímabil Microsoft leyfa.
- Önnur atriði sem vert er að hafa í huga:
- Notkun á flutningstólum og hugbúnaði getur verið takmörkuð.
- Ekki er hægt að veita tölvudeildum eða þjónustuaðilum stofnana aðgengi í samrekinn skýjageira.