Efnisyfirlit

Almennt

Hvað er Microsoft 365 Copilot?

Microsoft 365 Copilot er gervigreindaraðstoð sem er samþætt Microsoft 365 og vinnur með forritum eins og Word, Excel, PowerPoint, Outlook og Teams.


Copilot getur aðstoðað við að skrifa texta, draga saman upplýsingar, greina gögn og svara spurningum út frá þeim upplýsingum sem notandi hefur heimild til að sjá.


Sjá einnig: 


Hefur Microsoft 365 Copilot aðgang að G, H og öðrum staðbundnum/ local drifum ?

Nei, ekki sjálfkrafa. 

Microsoft 365 Copilot hefur aðgang að þeim gögnum sem eru í Microsoft 365 vistkerfinu (t.d. SharePoint, OneDrive, Teams, Outlook og öðrum Microsoft 365 þjónustum) og sem notandinn hefur þegar heimild til að sjá. Hann hefur ekki sjálfkrafa aðgang að staðbundnum drifum eins og G:, H: eða öðrum netdrifum.


Hver er munurinn á Microsoft 365 Copilot og Microsoft 365 Copilot Chat?

Microsoft 365 Copilot Chat er öruggt fyrirtækjaspjall sem fylgir hæfum Microsoft 365 áskriftum.


Microsoft 365 Copilot er viðbótarleyfi sem gerir Copilot kleift að vinna með vinnugögn notandans í Microsoft 365 og veitir dýpri samþættingu við Word, Excel, PowerPoint, Outlook og Teams.


Sjá einnig: 

Hver fær Microsoft 365 Copilot?

Microsoft 365 Copilot er viðbótarleyfi sem úthlutað er á notendur samkvæmt ákvörðun viðkomandi ríkisaðila.

Hvað kostar Microsoft 365 Copilot?

Microsoft 365 Copilot er viðbótarleyfi ofan á Microsoft 365 grunnleyfi.

Upplýsingar um gildandi gjaldskrá má finna í greininni Microsoft 365 Copilot: Örugg gervigreind.

Get ég notað Copilot fyrir persónuleg verkefni?

Nei. 

Microsoft 365 Copilot er ætlað til vinnu innan Microsoft 365 umhverfis ríkisaðila og skal nota í samræmi við gildandi reglur um notkun gervigreindar.  Það er ekki ætlað til notkunar við persónuleg verkefni.

Sjá einnig:


Aðgangur og gögn

Fær Microsoft 365 Copilot nýjar aðgangsheimildir?

Nei.

Microsoft 365 Copilot veitir ekki nýjar aðgangsheimildir og breytir ekki aðgangsstýringum.

Copilot vinnur eingöngu með þau gögn sem notandi hefur þegar heimild til að sjá.

Sjá einnig: Microsoft 365 Copilot: Vernd gagna, öryggisflokkun og aðgangsstýring


Getur Microsoft 365 Copilot séð öll skjöl?

Nei.

Copilot getur aðeins unnið með skjöl, tölvupóst, Teams-samtöl og önnur gögn sem notandi hefur heimild til að sjá.


Getur Copilot séð gögn sem notandi hef ekki aðgang að?

Nei.

Ef notandi hefur ekki aðgang að upplýsingum getur Microsoft 365 Copilot hvorki fundið þær né unnið með þær.


Hver ber ábyrgð á því hvaða gögn Copilot getur notað?

Eigendur gagna bera ábyrgð á að:

  • Aðgangsstýringar séu réttar,
  • gögn séu rétt flokkuð og 
  • aðeins þeir sem þurfa aðgang hafi hann.


Sjá einnig:  Microsoft 365 Copilot: Ábyrgð eigenda gagna


Hvað er ofdeiling gagna?

Ofdeiling merkir að gögn eða svæði séu aðgengileg stærri hópi notenda en rekstrarleg eða fagleg þörf krefur.


Microsoft 365 Copilot breytir ekki slíkum heimildum en getur auðveldað notendum að finna upplýsingar sem þeir hafa þegar aðgang að.


Því er mikilvægt að fara reglulega yfir aðgangsstýringar.

Sjá einnig: 



Öryggi og undirbúningur

Er verið að nota gögnin mín til að þjálfa gervigreind?

Nei.

Samkvæmt Microsoft eru fyrirspurnir notenda (prompts), svör og gögn sem Microsoft 365 Copilot vinnur með ekki notuð til að þjálfa undirliggjandi málalíkön.


Eru gögnin mín örugg?

Microsoft 365 Copilot byggir á sömu öryggis- og persónuverndarstýringum og aðrar Microsoft 365 þjónustur.


Öryggi gagnanna byggir meðal annars á:

  • Réttum aðgangsstýringum,
  • réttri gagnaflokkun og
  • öryggisstýringum Microsoft 365.

Sjá einnig: 


Getur Copilot unnið með „Sérvarin gögn“?

Nei.

Gögn sem flokkuð eru sem Sérvarin eru ekki aðgengileg Microsoft 365 Copilot samkvæmt gildandi öryggisstillingum.


Hvað er „Varin án Copilot“?

„Varin án Copilot“ er viðbótarmerking sem hægt er að nota í sérstökum tilvikum þegar útiloka á ákveðin gögn frá Microsoft 365 Copilot.


Hún kemur ekki í stað réttrar aðgangsstýringar eða öryggisflokkunar heldur er viðbótaröryggisstýring þegar sérstök þörf er fyrir hendi.

Sjá einnig: 


Þarf stofnunin mín að undirbúa gögn áður en Copilot er tekið í notkun?

Já.

Mælt er með að:

  • Fara yfir aðgangsstýringar,
  • fara yfir gagnadeilingu,
  • tryggja rétta gagnaflokkun,
  • yfirfara SharePoint- og Teams-svæði og
  • fræða notendur um ábyrga notkun.



Aðstoð

Hvert get ég leitað ef ég finn ekki svarið?

Ef spurningar vakna sem ekki er svarað hér er hægt að hafa samband við Þjónustuborð Umbru.


Tengdar greinar: