Tilgangur
Veita notanda sem er ekki hluti af stofnun sem er í þjónustu hjá Umbru aðgang að beiðnakerfinu.
Viðkomandi skal vera skráður í hópinn: PA – Gestaaðgangar tæknilegra tengiliða.
Ábyrgð
Þjónustuborð Umbru sér um að bæta notendum í hópinn PA – Gestaaðgangar tæknilegra tengiliða eftir samþykkta beiðni.
Innskráning í beiðnakerfi
- Notandi fer á slóðina: https://umbra.beidnakerfi.is/support/login
- Á innskráningarsíðunni velur notandi: Viðskiptavinir Umbru
- Næst velur notandi: GOV – Starfsmenn ráðuneyta
- Notandi slær inn netfang sitt.
- Velja skal: Choose passkey
- Skanna QR-kóðann sem birtist á skjánum með farsíma eða öðru tæki sem styður passkey.
- Eftir skönnun birtist gluggi þar sem netfang notandans er sýnt ásamt valkostinum: Stay signed in?
- Notandi velur Já eða Nei eftir eigin ósk.
- Að því loknu hefst MFA auðkenning (Multi-Factor Authentication).
- Þegar MFA hefur verið staðfest fæst aðgangur að beiðnakerfinu.
Til athugunar
- Aðgangur virkar aðeins ef notandinn hefur verið skráður í hópinn PA – Gestaaðgangar tæknilegra tengiliða.
- Notandinn þarf að hafa aðgang að MFA auðkenningu og tæki sem styður passkey.
- Mælt er með að notandi noti Microsoft Authenticator eða aðra samþykkta passkey-lausn.